

Á veturnar er hægt að njóta þess að skíða um svæðið sem telur 105 km. af brekkum og 43 skíðalyftur á svæðinu frá Madonna di Campiglio og tol Folkarida Marilleva, það er einnig hægt að skauta á stóru skautasvelli.
Það er einnig hægt að fara í kynnisferðir á snjóbílum upp í fjöllun í hjarta Dólómítafjallana.
Á sumrin er hægt að fara í fjallahjólaferðir eða annarskonar kynnisferðir, allt frá auðveldum göngum um þorpið, umkringdur skógum, vötnum, fossum og fjöllunum upp í hinn fræga Via Ferrate og fjallaklifur í Dólómitafjöllunum.
Einnig er golfvöllur í aðeins 1,5 km fjarlægð frá Hótel Montana, Gold Club Campo Carlo með 9 holu völl sem er einn hinna elstu golfvalla á Ítalíu.
Á kvöldin er hægt að fara í skemmtilegan göngutúr um bæinn og versla í hátískuverslunum og borða á frábærum ítölskum veitingastöðum.